VÍNKASSI – Þrjú vín frá Ariönnu Occhipinti

kr.15,900.00

3 x 750 ml.

Kassi með þremur vínum frá Ariönnu Occhipinti á Sikiley.

Vínin frá Ariönnu eru fáguð og aðgengileg. Þau eru fullkomin fyrir þá sem vilja kynnast heimi náttúruvínanna.

SP 68 Bianco 2023 er blanda af þrúgunum moscato og albanello. Það dvelur með hýðinu í 2 vikur svo það kallast í raun gulvín (orange wine). Frískleiki er þó allsráðandi, ilmríkt og passlega þurrt.
SP 68 Rosso 2023 er sömuleiðis framleitt úr tveimur ólíkum þrúgum, frappato og nero d’avola. Eins og hvíta útgáfan er þetta rauðvín frekar létt, ferskt og fullkomið matarvín.
Frappato 2022 er framleitt 100% úr samnefndri þrúgu, frappato. Hluti vínsins þroskast í 14 mánuði í stórum eikartunnum svo maður finnur lítinn sem engan viðartón.

Lífræn ræktun.

SMELLTU HÉR til að sjá allar vörur í vefverslun

6 in stock