Occhipinti, Arianna

Arianna Occhipinti er ung og öflug víngerðarkona í Fossa di Lupo á Suðausturhorni Sikileyjar. Hún hóf eigin vínrækt fyrir 15 árum síðan þá rétt rúmlega tvítug. Hún fór í víngerðarskóla en lærði mest af frænda sínum og öðrum í hennar nærumhverfi sem stunduðu náttúrulega víngerð.

Strax frá upphafi hefur Arianna haft sterka sýn á hvað vínin hennar eigi að endurspegla. þau eiga að vera persónuleg, hrein og bein og með sterka tilfinningu fyrir uppruna sínum. Hennar leið að því marki er að gera vín á eins náttúrulegan hátt og er unnt, lífræn, án nokkurra eiturefna, náttúrulega gerjuð, ófilteruð og með litlu viðbættu súlfati. Vínin hennar hafa það sameiginlegt að vera sérlega fáguð og vönduð.